|
föstudagur, 06 janúar 2012 |
|
URR hundamaturinn er nú til hjá okkur í 500gr pökkum.
URR hefur ekki verið fáanlegt um tíma vegna stórsölu til USA og Kanada. Þar á bæ er mikið eftirlit með innihaldi og gæðum dýrafóðurs og þurfti URR og MURR fóðrið að fara í gegnum ítarlegar prófanir til að fá samþykki. Með ánægju má segja frá að fóðrið stóðst alla skoðun með prýði og vakti athygli fyrir frábært hráefni og mikil gæði!
URR og MURR er unnið úr íslenskum sláturafurðum án allra aukaefna - hrein íslensk vara, full að hágæða kjöti, járni og vítamínum, hollt og gott fóður fyrir dýrin okkar, má bæði nota sem einasta fóður eða samhliða góðu þurrfóðri.
|
|
|
Opnunartími um jól og áramót |
|
ţriđjudagur, 20 desember 2011 |
|
23. desember, Þorláksmessa: opið 10 - 12
24. 25. og 26. desember: LOKAÐ
27. - 30. desember opið skv venju
31. desember, Gamlársdagur : opið 10 - 12
1. janúar 2012: LOKAÐ
Opið skv. venju frá 2. janúar 2012
Engin föst vakt er á spítalanum yfir hátíðarnar en ef um neyðartilfelli er að ræða má reyna farsíma Elfu dýralæknis 896 0106.
Við óskum öllum dýrum og eigendum þeirra Gleðilegra Jóla og farsældar á komandi ári, þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem er að líða !
|
|
|
miđvikudagur, 14 desember 2011 |
|
Þessi yndislega kisa heitir Tína og er fædd 1999. Hún var ættleidd ung hér á Dýraspítalanum af Ragnari og Áslaugu og hefur átt hjá þeim góða ævi. Kom í sína árlegu bólusetningu og eftirlit sem hún stóðst með sóma - dásamleg kisa skreytt með indversku hálsbandi og bresku silfurhjarta

|
|
|
ţriđjudagur, 13 desember 2011 |
|
 Þetta stóra fituæxli fjarlægðum við úr holhönd eða undan hægra framfæti á tíkinni Týru. Átti hún orðið í miklum erfiðleikum með að hreyfa fótinn og ekki annað hægt en að fjarlægja fituæxlið til að hún gæti gengið eðlilega.
LIpom eru fremur algeng í gæludýrum og þarf oftast að fjarlægja þau með skurðaðgerð , sérstaklega ef þau eru á slæmum stöðum og hefta hreyfigetu dýranna eins og hjá Týru.
Hér eru nokkrar myndir af Týru þegar við tókum saumana, sárið lítur mjög vel út og Týra "ung í annað sinn" , hleypur sperrt um allt og hefur aftur gleði af útiveru og göngutúrum.
 
|
|
|
föstudagur, 02 desember 2011 |
Gunnar Örn sérfræðingur í tannhirðu og röspun hrossa kemur til Akureyrar nú um miðjan desember. Þeir sem eru með hross sem þarf að laga bit, fjarlægja úlftennur, raspa og laga í munni eru hvattir til að hafa samband við Dýraspítalann í Lögmannshlíð s 461 2550 eða 896 0106 og láta skrá sig á lista fyrir Gunnar.
|
|
|
miđvikudagur, 09 nóvember 2011 |
|

Þessi yndislega sæti kettlingur heitir Flóki og er blanda af persa, norskum skógarketti og venjulegum íslenskum heimilisketti. Hann kom á dýraspítalann með eigendum sínum Stefáni og Baldri í bólusetningu, örmerkingu og ormalyfsgjöf. Þeir keyptu líka gott fóður og lítinn bursta - þegar maður á svona loðinn kött þarf að passa vel feldhirðuna, kemba og greiða á hverjum degi og einnig gefa þeim gott fóður , annars er hætta á þurrum feldi og hárlosi.
Flóki er mjög fallegur og þeir félagar eiga eftir að eiga góðar stundir saman!
|
|
|
OPNUNARTÍMAR DÝRASPÍTALANS |
|
mánudagur, 12 september 2011 |
|
Ágætu viðskiptavinir
Opið er á Dýraspítalanum alla virka daga frá 9 - 13.30
Að auki er opið á miðvikudögum frá 16 - 18 og laugardögum 10 - 12.
Tímapantanir eru ekki nauðsynlegar nema fyrir stærri aðgerðir.
Síminn hjá okkur er 461 2550, netfang er
This email address is being protected from spam bots, you need Javascript enabled to view it
|
|
|
Sérfrćđingur í sjúkdómum smádýra á Akureyri |
|
ţriđjudagur, 19 júlí 2011 |
Steinunn Geirsdóttir sérfræðingur í sjúkdómum hunda og katta kemur norður á Dýraspítalann í Lögmannshlíð föstudaginn 22. júlí.
Gott tækifæri fyrir eigendur dýra sem líða t.d af hjarta og lungnasjúkdómum eða öðrum langvinnum sjúkdómum að koma og fá skoðun hjá sérfræðingi.
Steinunn hefur leyfi til að gefa út vottorð vegna hjartaskoðunar ræktunardýra - HRFÍ gerir kröfu um slík vottorð hjá nokkrum tegundum , frábært að geta sótt þjónustuna hér norðan heiða!
|
|
|
Móa - sumarstarfsmađur 2011 |
|
ţriđjudagur, 28 júní 2011 |
 Móheiður Guðmundsdóttir menntaskólanemi frá Akureyri er sumarstarfsmaðurinn okkar 2011. Móa er alvön dýrum, hefur átt Cavalier tík í 9 ár og hefur verið í hestum. Við bjóðum Móu velkomna til starfa!
|
|
|
miđvikudagur, 01 júní 2011 |
Þessi hryssa var svo óheppin að fá högg á neðri góminn. Við það brotnaði tönnin og hékk laus á rótinni. Fékk hún róandi og staðdeyfingu og tókum við tönnina og hreinsuðum rótina vel burt líka. Þetta grær vel, núna rúmlega mánuði síðar lítur þetta mjög vel út og lítur ekki út fyrir að valda hryssunni varanlegum skaða. Hún þarf þó að vera í hvíld frá reið fram á haustið.     |
|
|
Verknámsnemi frá Ţýskalandi |
|
föstudagur, 20 maí 2011 |
Larissa Butschek er að læra dýralækningar í Munchen í Þýskalandi. Hún er búin með 4 ár og er núna í 6 vikna verklegu námi hjá okkur á Dýraspítalanum í Lögmannshlíð. Larissa var að vinna í 5-6 mánuði á sauðfjárbúinu í Miðdal í Skagafirði áður en hún fór í námið svo hún hefur reynslu af íslenskum sveitastörfum og talar aðeins íslensku. Larissa er mjög jákvæð, dugleg og klár stelpa, hefur áhuga á öllum dýrum stórum og smáum , aðstoðar okkur við öll störf og fer með í sveitina til bænda.  |
|
|
|
<< Hefja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Nćsta > Endir >>
|
| Niđurstöđur 1 - 31 af 236 |